Golf

Nína og Haraldur stigameistarar

Sjötta og síðasta stigamótið í Kaupþingsmótaröðinni í golfi fór fram í dag. Nína Björk Geirsdóttir úr GKj og Haraldur Hilmar Heimisson úr GR eru stigameistarar 2007. Fyrir mótið var Nína orðin stigameistari en Örn Ævar Hjartarson var efstur í karlaflokki.

Örn Ævar tók þó ekki þátt í mótinu í dag þar sem hann er staddur á Bretlandseyjum að taka þátt í úrtökumóti Evrópumótaraðarinnar. Haraldur endaði í öðru sæti á mótinu í dag en félagi hans úr GR, Stefán Már Stefánsson, vann mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×