Fótbolti

Vicente frá í mánuð

Vicente þjáðist vegna gamalla meiðsla á læri sem ekki voru gróin
Vicente þjáðist vegna gamalla meiðsla á læri sem ekki voru gróin NordicPhotos/GettyImages
Spænski landsliðsmaðurinn Vicente hjá Valencia verður frá keppni í mánuð vegna meiðsla á læri. Þetta kom í ljós eftir að hann fór til sérfræðinga í Madrid í gær sem fengnir voru til að skoða hann eftir að hann hélt því fram í fjölmiðlum að læknar Valencia væru vanhæfir. Hann á yfir höfði sér sekt vegna þeirrar yfirlýsingar, en læknar Valencia höfðu áður dæmt að meiðsli hans væru af sálrænum toga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×