Fótbolti

Schuster kannast vel við takta Sneijder

Félagar Sneijder fagna glæsilegu marki hans gegn Villarreal í gær
Félagar Sneijder fagna glæsilegu marki hans gegn Villarreal í gær AFP

Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, var að vonum ánægður með frábæran leik Hollendingsins Wesley Sneijder um helgina þegar Real Madrid burstaði Villarreal 5-0 á útivelli. Sneijder skoraði tvö mörk og lagði upp eitt og sagði Schuster hann hafa minnt sig á annan glókoll sem lék með Real á árum áður.

Sneijder hefur nú skorað þrjú mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir meistara Real Madrid og var fyrra markið hans í gær einstaklega glæsilegt. Hann skaut boltanum þá í stöng og inn beint úr aukaspyrnu og vöktu þessi tilþrif hrifningu þjálfarans. "Þetta minnti mig á annan ljóshærðan gutta sem tók svipaðar aukaspyrnur með liðinu fyrir nokkrum árum," sagði Schuster glottandi og rifjaði upp tilþrif sín. "Hann á eftir að skora mörg svona í vetur," bætti hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×