Fótbolti

Dýr skilnaður í vændum hjá Thierry Henry

Henry fær knús frá konu sinni eftir að Frakkar tryggðu sér sæti í úrslitum HM síðasta sumar
Henry fær knús frá konu sinni eftir að Frakkar tryggðu sér sæti í úrslitum HM síðasta sumar AFP

Franski framherjinn Thierry Henry skildi í dag við konu sína til fjögurra ára, fyrirsætuna Claire Merry. Gengið var frá skilnaðinum í réttarsal í Lundúnum í morgun en hvorugt þeirra hjóna var viðstatt. Talið er að skilnaðurinn gæti átt eftir að kosta markaskorara Barcelona vænar fúlgur.

Henry og Merry kynntust þegar þau léku saman í auglýsingu fyrir Renault Clio bifreiðar fyrir nokkrum árum og eiga þau saman tveggja ára gamla dóttur. Henry tilkynnti að hann væri að fara frá konu sinni í júní, skömmu áður en hann gekk í raðir Barcelona á Spáni þar sem hann ku vera að raka inn hátt í 17 milljónum króna í vikulaun.

Hjónin fyrrverandi eiga fyrir höndum forræðisdeilu yfir dótturinni, en móðir hennar segir farir bónda síns fyrrverandi ekki sléttar. Henry er sagður hafa kynnst annari konu í síðasta mánuði þegar hann var einmitt við tökur á annari auglýsingu - að þessu sinni fyrir Reebok íþróttavöruframleiðandann. Merry er sögð sár og reið og ætlar sér að næla í hverja krónu sem hún nær í af auðæfum fyrrverandi. Eignir Henry eru metnar á rúma 3 milljarða króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×