Viðskipti erlent

Fjárfestar vongóðir um stýrivaxtalækkun vestra

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Hann segir bankann ætla að gera hvað hann geti til að bregðast við hræringum á fjármálamörkuðum.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Hann segir bankann ætla að gera hvað hann geti til að bregðast við hræringum á fjármálamörkuðum. Mynd/AFP

Gengi helstu hlutabréfavísitalna í Bandaríkjunum hækkaði við opnun fjármálamarkaða þar í landi eftir að Ben Bernanke, seðlabankastjóri landsins, sagði bankann ætla að gera hvað hann geti til að bregðast gegn því að hræringar á hlutabréfamörkuðum muni smita frá sér út í hagkerfið. Þótt Bernanke hafi ekki sagt til um hvort bankinn ætli að lækka stýrivexti segja fjármálaskýrendur flest benda til þess.

Fjárfestar biðu óþreyjufullir eftir næstu skrefum seðlabankans og þykja vongóðir um að bankinn lækki vextina þrátt fyrir að Bernanke hafi einungis sagt að bankinn muni fylgjast grannt með stöðu mála, að sögn fréttastofunnar Associated Press, sem hefur eftir seðlabankastjóranum að það væri ekki hlutverk bankans að koma til fjárfestum og fjármálafyrirtækjum til hjálpar. Vanskil á undirmálslánamarkaði, sem væri áhættusöm iðja sem bankarnir hefðu sjálfir ákveðið að taka þátt í, að hans sögn. „En þróun á fjármálamörkuðum getur haft áhrif út fyrir fjármálamarkaði. Seðlabankinn verður að hafa það í huga við ákvarðanatöku sína," sagði Bernanke og átti þar við að áhrif af samdrættinum gæti komið niður á einkaneyslu auk þess sem taugatitrings hafi gætt vegna þessa á hlutabréfamörkuðum víða um heim.

Associated Press hefur eftir greinendum að þetta gæti leitt til þess að bankinn lækki vextina á næsta fundi sínum 18. september. Verði það raunin verður þetta í fyrsta sinn sem breyting verður gerð á stýrivaxtastigi í Bandaríkjunum síðan í júní í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×