Viðskipti erlent

Áhrif af fasteignalánamarkaði takmörkuð

Baudouin Prot, bankastjóri BNP Paribas.
Baudouin Prot, bankastjóri BNP Paribas. Mynd/AFP

Baudouin Prot, forstjóri BNP Paribas, eins stærsta banka Frakklands, varði í dag ákvörðun bankans að skrúfa fyrir þrjá sjóði sína fyrir nokkru til að koma í veg fyrir lausafjárþurrð vegna samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði. Hann segir frönsk fjármálafyrirtæki ekki eiga á hættu að lenda í vandræðum vegna hræringanna í Bandaríkjunum.

Bankinn taldi hættu á að sjóðir bankans gætu tæmst vegna aukinna vanskila á bandarískum fasteignalánamarkaði í byrjun ágúst en bankinn hafði fjárfest í annars flokks lánasöfnum í Bandaríkjunum. Hann skrúfaði fyrir veitingu úr sjóðunum 9. ágúst síðastliðinn vegna yfirvofandi hættu á lausafjárskorti og varð það til þess að taugatitrings gætti á evrópskum fjármálamörkuðum.

Sjóðurinn opnaði fyrir sjóðina á nýjan leik í síðustu viku en samkvæmt Prot nam heildartap sjóðanna af lánasöfnunum einungis um tveimur prósentum af heildarvirði þeirra, að sögn fréttastofunnar Associated Press

Prot sagði hins vegar í blaðaviðtali í dag að áhrifin af samdrættinum vestanhafs yrðu að öllum líkindum takmörkuð og bætti við að mál bankans hefði verið blásið upp í fjölmiðlum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×