Viðskipti erlent

Fjármálaráðherra Kína sagði óvænt af sér

Jin Renqing, sem sagt hefur stöðu sinni sem fjármálaráðherra Kína lausri.
Jin Renqing, sem sagt hefur stöðu sinni sem fjármálaráðherra Kína lausri. Mynd/AFP
Jin Renqing, fjármálaráðherra Kína, hefur sagt af sér. Ákvörðunin kom á óvart en uppsögnin mun vera af persónulegum ástæðum. Skattstjóri Kína tekur við starfi hans en fjármálaráðherrann fyrirverandi mun taka við háttsettri stöðu hjá kínverska kommúnistaflokknum.

Breska ríkisútvarpið bendir á að ekki liggi fyrir hverjar persónulegar ástæður Jin Renqing gefur upp en vitnar til kínverskra fjölmiðla sem segja að hann hafi verið bendlaður við ástarsamband með fyrrum flokksmeðlimi kommúnistaflokksins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×