Viðskipti erlent

Hlutabréf hækka í Evrópu og Asíu

Maður virðir fyrir sér upplýsingaskilti við kauphöllina í Tókýó í Japan.
Maður virðir fyrir sér upplýsingaskilti við kauphöllina í Tókýó í Japan. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu og Asíu í dag. Þetta er í takti við hækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði í gær en fjárfestar vestanhafs segja auknar líkur á að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti í september til að bregðast við aðstæðum á fjármálamarkaði.

Hlutabréfavísitölur ytra lækkuðu nokkuð á mánudag og þriðjudag þar sem greiningarfyrirtæki spáðu því að samdráttur á bandarískum fasteignamarkaði gæti komið niuðr á afkomu stærstu fjármálafyrirtækja í heimi sem hafi fjárfest í bandarískum fasteignalánasöfnum. Þá hafa verið blikur á lofti að einkaneysla gæti dregist saman í Bandaríkjunum en það gæti komið niður á hagvexti í landinu og jafnvel smitað út frá sér.

Þrátt fyrir þetta hefur Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, ekkert sagt til um hvort vextirnir verði lækkaðir að öðru leyti en því að bankinn sé tilbúinn til að bregðast við þreningnum á markaðnum.

FTSE-vísitalan í Bretlandi hefur hækkað um tæpt prósent það sem af er dags, þýska Dax-vísitalan um tæp 0,5 prósent og franska Cac-40 vísitalan hefur hækkað um rúm 1,2 prósent.

Norðurlöndin hafa ekki farið varhluta af hækkuninni. Þannig hefur hlutabréfavísitalan í kauphöllinni í Ósló í Noregi hækkað um tæp tvö prósent og C20-vísitalan í kauphöllinni í Kaupmannahöfn hækkað um tæp 0,8 prósent. 

Þá hækkaði Nikkei-vísitalan um 0,9 prósent við lokun markaða í Japan í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×