Fótbolti

Riguelme til Madríd?

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Juan Roman Riquelme, miðjumaður Villareal, hefur samþykkt að skrifa undir tveggja ára samning við Atletico Madrid samkvæmt spænsku útvarpsstöðinni Cadena Ser. Engin opinber tilkynning hefur komið frá klúbbunum en útvarpsstöðin segist hafa heimildarmann sem er náinn leikmanninum.

Þessi 29 ára Argentínumaður féll úr náðinni hjá þjálfara Villareal á síðasta tímabili og var lánaður til Boca Juniors í heimalandinu þar sem hann þótti standa sig mjög vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×