Viðskipti erlent

Samdráttur hjá DaimlerChrysler

Dieter Zetsche, stjórnarformaður DaimlerChrysler, við Smart-bíl frá fyrirtækinu.
Dieter Zetsche, stjórnarformaður DaimlerChrysler, við Smart-bíl frá fyrirtækinu. Mynd/AFP

Þýski bílaframleiðandinn DaimlerChrysler hagnaðist um 1,85 milljarða evra, jafnvirði 162 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er 14 prósenta samdráttur frá sama tíma á síðasta ári. Hagnaður Chrysler-hluta Daimler og lánaarms fyrirtækisins í Bandaríkjunum jókst um 18 prósent á milli ára.

Sala á bílum undir merkjum fyrirtækisins nam 23,84 milljörðum evra sem er 760 milljónum evra samdráttur á milli ára.

Fjárfestingaféalgið Cerberus Capital Management gerði tilboð í 80 prósent af Chrysler-hluta DaimlerChrysler og lánafyrirtæki þess fyrr á árinu en viðskiptin gengu í gegn nú í ágúst. Kaupverð nemur 7,4 milljörðum dala, jafnvirði 476 milljarða króna. Þar sem fjárfestingafélag fer með stjórnartauma í Chrysler verður þetta því í síðasta sinn sem uppgjörstölur verða birtar fyrir þennan hluta samstæðunnar, að sögn fréttastofunnar Associated Press.

Í kjölfar viðskiptanna hefur verið boðað til hluthafafundar félagsins í byrjun október en þar verður tekin til umfjöllunar breyting á nafni fyrirtækisins sem mun eftirleiðis heita Daimler AG. Líkur eru á að nýtt nafn verði samþykkt þrátt fyrir að nokkrir hluthafar vilji taka upp eldra nafn fyrirtækisins, Daimler-Benz, að sögn Associated Press.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×