Viðskipti erlent

Nasdaq segir tilboð sitt betra

Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq. Hann hvetur hluthafa í OMX-samstæðunni til að halda að sér höndum þrátt fyrir hærra yfirtökutilboð frá kauphöllinni í Dubai.
Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq. Hann hvetur hluthafa í OMX-samstæðunni til að halda að sér höndum þrátt fyrir hærra yfirtökutilboð frá kauphöllinni í Dubai. Mynd/AFP

Forsvarsmenn bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq hvetja hluthafa í norrænu OMX-kauphallarsamstæðunni til að halda að sér höndum þrátt fyrir að kauphöllin í Dubaí hafi lagt fram hærra yfirtökutilboð í norræna markaðinn í dag.

Kauphöllin í Dubaí lagði fram tilboð upp á fjóra milljarða bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 270 milljarða íslenskra króna, í OMX-samstæðuna í morgun. Samstæðan rekur kauphallir víða á Norðurlöndunum, þar á meðal hér, og í Eystrasaltsríkjunum.

Fréttastofa Reuters hefur eftir forsvarsmönnum Nasdaq að þótt tilboð kauphallarinnar í Dubaí hljóði upp á 300 milljónir bandaríkjadala meira en Nasdaq hafi boðið þá ættu hluthafar að standa óhaggaðir og vísa til þess að þegar samruni kauphallanna gangi í gegn fái þeir 28 prósent í sameinuðu félagi. Þá er sömuleiðis stefnt að því að skera niður kostnað um 150 milljónir dala á ári gangi samruninn í gegn, að þeirra sögn.

Þá hefur Reuters eftir forsvarsmönnum Nasdaq að þeir eigi í viðræðum við stjórn OMX-samstæðunnar vegna tilboðsins.

Í tilkynningu frá Kauphöllinni í Dubai í dag segir að hún ráði nú þegar yfir rúmlega fjórðungshlut í OMX. Tilboð kauphallarinnar í OMX hljóðar upp á 230 sænskar krónur á hlut, jafnvirði tæplega 2.300 íslenskra króna. Samkvæmt því er virði OMX-kauphallarinnar rúmir 270 milljarðar króna. Til samanburðar hjóðar tilboð Nasdaq upp á 210 sænskar krónur á hlut.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×