Viðskipti erlent

Fjárfestar reikna með frekari lækkun vestanhafs

Miðlari á Indlandi. Niðursveifla hefur verið á öllum fjármálamörkuðum í dag og gera fjárfestar í Bandaríkjunum við því að hún haldi áfram í dag.
Miðlari á Indlandi. Niðursveifla hefur verið á öllum fjármálamörkuðum í dag og gera fjárfestar í Bandaríkjunum við því að hún haldi áfram í dag. Mynd/AP

Fjárfestar í Bandaríkjunum hafa sett sig í stellingar fyrir enn eina dýfuna á hlutabréfamarkaði vestanhafs í dag eftir að forsvarsmenn fjármálafyrirtækisins Countrywide Financial Corporation, einu stærsta fasteignalánafyrirtæki þar í landi, greindu frá því að þeir hefðu þurft að sækja í varasjóði sína vegna lausafjárskorts.

Helstu vísitölur lækkuðu talsvert á bandarískum hlutabréfamarkaði í gær og sló taktinn fyrir lækkanahrinu á alþjóðamörkuðum í dag. Gengi Nasdaq-vísitölunnar lækkaði um tæp tvö prósent í gær og hvarf við það hækkun ársins.

Countrywide Financial Corporation hefur átt við erfiðleika að etja í kjölfar samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði en gengi þess hefur hríðfallið síðan samdráttarins varð vart. Þetta er ekkert einsdæmi fyrir stór lánafyrirtæki í þessum geira í Bandaríkjunum en nokkur hafa verið úrskurðuð gjaldþrota og önnur farið fram á greiðslustöðvun.

Slæmu fréttirnar fyrir opnun markaða í Bandaríkjunum í dag eru þær að Countrywide Financial varð að nýta sér ádráttarlán sem fyrirtækið hafði aflað sér sökum lélegrar stöðu. Lánið nemur 11,5 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 800 milljarða íslenskra króna, að sögn fréttastofunnar Associated Press.

Gengi bréfa í fyrirtækinu lækkaði við þetta um 10,6 prósent fyrir opnun markaða vestanhafs í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×