Viðskipti erlent

Hlutabréf lækka í Evrópu en hækka í Japan

Miðlarar fylgjast með gengi hlutabréfa í þýsku kauphöllinni í Frankfurt.
Miðlarar fylgjast með gengi hlutabréfa í þýsku kauphöllinni í Frankfurt. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa lækkaði lítillega við opnun viðskipta á fjármálamörkuðum í Evrópu í dag. Þetta kemur í kjölfar lækkunar á markaði í Bandaríkjunum í gær. Gengi Nikkei-vísitölunnar hækkaði hins vegar lítillega við lokun viðskipta í kauphöllinni í Japan.

Seðlabankar stórra hagkerfa hafa dælt jafnvirði tugþúsundum milljarða króna inn á fjármálamarkaði síðustu tvo viðskiptadaga í því augnamiði að mýkja skellinn sem fjármálastofnanir víða um heim hafa orðið fyrir vegna samdráttar á fasteignalánamarkaði í Bandaríkjunum.

Fjárfestar eru uggandi yfir stöðu mála, ekki síst eftir að svissneski bankinn UBS, sem er með starfsemi víða um heim, greindi frá því að skellurinn á fjármálamarkaði hefði að öllum líkindum áhrif á afkomutölur fyrirtækisins á yfirstandandi ársfjórðungi, að sögn BBC. Gengi bréfa í bankanum lækkaði um þrjú prósent við fréttirnar.

FTSE-vísitalan í Lundúnum í Bretlandi lækkaði um 0,7 prósent við opnun viðskipta og stendur í 6.777 stigum. Dax-vísitalan lækkaði um 0,6 prósent en Nikkei-vísitalan hækkaði um 0,3 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×