Golf

Tiger Woods með 13 risatitla, trúir því varla sjálfur

NordicPhotos/GettyImages

Tiger Woods hélt út á síðasta hringnum sem hann endaði á 69 höggum og sigraði á 89. PGA Meistaramótinu. Hann var tveimur höggum á undan Woddy Austin og þremur á undan Ernie Els.

Þetta er 13. risatitill Tigers og fjórði sigurinn á PGA Meistaramótinu. Hann hefur sigrað fjórum sinnum á Masters mótinu, tvisvar á US Open og þrisvar á Opna breska. Tiger sagði í viðtali eftir mótið að hann tryði því varla hversu marga titla hann væri búinn að landa.

Tiger var spurður eftir mótið hvað væri minnistæðast við þetta mót þá var hann fljótur að svara því en það var að hafa spilað á 63 í risamóti og þegar hann var kominn inn í tjaldið þar sem skilað er skorkortunum þá tók konan hans, Elin, og dóttir hans, Sam á móti honum.

Kylfingur.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×