Viðskipti erlent

Hagnaður Murdochs eykst milli ára

Fjölmiðla- og afþreyingamógúllinn Rupert Murdoch.
Fjölmiðla- og afþreyingamógúllinn Rupert Murdoch.

News Corporation, afþreyinga- og fjölmiðlaveldi ástralskættaða milljarðamæringsins Ruperts Murdoch, skilaði hagnaði upp á 890 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 56,5 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi, sem var fjórði fjórðungurinn í bókum samstæðunnar. Þetta er 4,5 prósenta aukning á milli ára.

Fjölmargir miðlar eru undir hatti News Corporation, svo sem bandaríska Fox News fréttastöðin, hin breska Sky News og fjöldi dagblaða. Þá tilheyrir kvikmyndaframleiðandinn 20th Century Fox samstæðu Murdochs.

News Corporation tryggði sér í byrjun mánaðarins bandaríska útgáfufélagið Dow Jones & Co., sem meðal annars heldur úti samnefndri fréttaveitu og gefur út dagblaðið Wall Street Journal. Kaupverðið nemur 5,6 milljörðum bandaríkjadala. Murdoch er sagður ætla að grípa til hagræðingarráða innan Dow Jones og spara með því móti um 50 milljónir dala. Niðurskurður innan fyrirtækisins virðist því yfirvofandi, að mati breska ríkisútvarpsins, BBC.

Helstu skýringarnar á auknum hagnaði samstæðunnar er aukin sala auglýsinga og fleiri áskrifendur að sjónvarpsstöðvum fyrirtækisins, að sögn BBC. Hagnaðurinn var hins vegar lítill hjá kvikmyndafyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×