Fótbolti

Deco vill vinna aftur með Mourinho

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Deco hjá Barcelona hefur gefið það út að hann myndi langa að vinna með José Mourinho, framkvæmdastjóra Chelsea. Deco var einn af lykilmönnum Porto þegar liðið varð Evrópumeistari undir stjórn Mourinho. Orðrómur hefur verið á kreiki að Barcelona vilji losna við leikmanninn vegna komu Thierry Henry í liðið.

„Hugmyndin að vinna aftur með José heillar mig," sagði Deco. „Hann hafði mikil áhrif á feril minn og hann gerði svo mikið fyrir mig. Ég hef unnið með honum áður og það væri gott að fá að vinna aftur með honum."

Deco notaði einnig tækifærið til að tala um ensku Úrvalsdeildina. „Úrvalsdeildin er án efa jafn stór deild og sú spænska og ég vil spila þar. Það er enginn vafi á að það er hægt að bera Barcelona saman við Chelsea og Manchester Unitd," sagði portúgalski landsliðsmaðurinn Deco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×