Fótbolti

Atletico Madrid klófestir Reyes

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Atletico Madrid hefur staðfest að þeir hafi nælt sér í Jose Antonio Reyes frá Arsenal. Spænski framherjinn hefur ekki farið leynt með að hann vilji spila í heimalandinu eftir vonbrigði á Englandi með Arsenal, en hann var á láni hjá Real Madrid á síðasta tímabili. Á vefsíðu Skysports kemur fram að Reyes muni skrifa undir fjögurra ára samning við félagið og kaupverðið er talið vera um 8,1 milljón punda.

Reyes gekk til liðs við Arsenal í janúar árið 2004 og skoraði 23 mörk í 110 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×