Fótbolti

Rijkaard segir það ekki vera vandamál að stilla stjörnunum í byrjunarliðið

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Frank Rijkaard segir að að það verði ekkert mál að stilla stjörnunum fjórum upp saman í byrjunarliði Barcelona. Þar á hann við Samuel Eto´o, Lionel Messi, Ronaldinho og Thierry Henry, en mikið hefur verið rætt um að þeir gætu ekki allir verið í byrjunarliðinu.

„Eina spurningin er hvort að ég vilji það. Ég held að góðir leikmenn geti spilað saman," sagði Rijkaard. Hollenski þjálfarinn notaði tækifærið til að hrósa Henry fyrir frammistöðu sína í fyrsta leik sínum fyrir félagið. „Ég er mjög ánægður, það er svo langt síðan hann spilaði vegna meiðsla. Þetta var erfiður leikur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×