Innlent

Bremsulaus vinnubíll hafnaði á umferðarljósum

Sautján ára piltur slapp með skrekkinn í gær þegar vinnubíll sem hann ók hafnaði á umferðarljósum í Kópavogi.

Pilturinn hugðist nema staðar við gatnamót en uppgötvaði þá að bremsurnar virkuðu ekki. Hann náði að sveigja upp á graseyju en þar hafnaði bíllinn, sem var með kerru í eftirdragi, á umferðarljósum.Nokkur umferð var um gatnamótin þegar óhappið átti sér stað og þykir mildi að ekki fór verr.

Það vakti athygli við eftirgrennslan lögreglu að eigandi eða umráðamaður ökutækisins hafði ekki sinnt boðun um endurskoðun en við aðalskoðun í vor voru gerðar athugasemdir við hemlabúnað bílsins. Viðkomandi fékk þá frest til að koma bílnum í lag en af óhappinu að dæma virðist það ekki hafa verið gert. Skráningarnúmer bílsins voru fjarlægð eftir óhappið í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×