Fótbolti

Eiður ekki með Barcelona í Skotlandi

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki með Barcelona í æfingaferð liðsins til Skotlands vegna meiðsla á hné. Carlos Puyol verður ekki heldur með vegna meiðsla, auk þess sem að Lionel Messi, Gaby Milito og Rafa Márguez er enn í fríi vegna þáttöku þeirra í Suður-Ameríkukeppninni.

25 leikmenn verða í hópnum sem mætir Dundee United á fimmtudaginn og Hearts á laugardaginn, en þeir eru: Valdés, Jorquera, Oier, Belletti, Sylvinho, Zambrotta, Abidal, Marc Valiente, Oleguer, Thuram, Olmo, Xavi, Touré Yaya, Iniesta, Motta, Deco, Marc Crosas, Dimas, Giovani dos Santos, Bojan, Ronaldinho, Eto'o, Henry, Maxi López, Ezquerro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×