Fótbolti

Cannavaro ekki á förum frá Real Madrid

NordicPhotos/GettyImages

Ítalski varnarjaxlinn Fabio Cannavaro segist ekki vera á förum frá Real Madrid þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis í fjölmiðlum í heimalandi hans. Cannavaro er 34 ára gamall og segist kunna vel við sig á Spáni. Sagt var að framtíð hans væri óráðin í kjölfar þess að landi hans Fabio Capello var rekinn úr þjálfarastóli á dögunum.

"Ég hef alltaf haldið því fram að ég væri ánægður hjá Real Madrid og ég er mjög feginn því að hafa gert samning við félagið. Ég hef ekki heyrt neitt frá félaginu um að standi til að selja mig eða að borist hafi tilboð í mig. Ég er viss um að ég verð áfram hjá Real," sagði Cannavaro, sem náði sér reyndar aldrei almennilega á strik á fyrsta árinu sínu í spænsku deildinni eftir að hafa farið fyrir liði Ítala á HM sumarið áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×