Fótbolti

Real Madrid fær Dudek

NordicPhotos/GettyImages

Real Madrid hefur klófest pólska markvörðinn Jerzy Dudek frá Liverpool en þeir þurftu ekkert að borga fyrir leikmanninnn þar sem hann var með lausan samning. Real Madrid fengu hann til liðsins til þess að vera varamaður fyrir spænska landsliðsmarkvörðinn, Iker Casillas.

Madrid hefur verið á eftir markverði síðan félagið seldi hinn unga og efnilega Diego Lopez til Villareal fyrir sex milljón evrur í síðasta mánuði. Dudek var líka undir smásjánni hjá Bolton og Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×