Erlent

Skyggnst inn í árdaga alheimsins

Oddur S. Báruson skrifar
MYND/drudgereport

Bandarískir stjörnufræðingar segjast hafa fundið fjarlægustu og elstu stjörnuþokur sem þekktar eru. Telja þeir að stjörnuþokur þessar hafi myndast 500 miljón árum eftir Miklahvell, þegar alheimurinn varð til. Elstu áðurþekktu stjörnuþokurnar eru taldar vera 250 miljónum árum yngri. Aldur alheimsins er umdeildur en 13,7 milljarðir ára eru títtnefndir í þeirri umræðu.

Ef allt saman reynist rétt mynduðust hinar nýfundnu stjörnuþokur þegar alheimur hafði náð fjórum hundraðshlutum af sínum núverandi aldri.

Það var í gegnum Keck II sjónaukann á Hawaii sem stjörnufræðingarnir komu auga á óþekkta ljósglætu, sem þeir segja að komi frá umræddum stjörnuþokum. Vegna hinnar hrikalegu fjarlægðar hefur ljósglætan frá stjörnuþokunum verið ansi lengi á leið sinni til til jarðar.

Samkvæmt útreikningum stjörnufræðingateymisins er ljósglætan af meintum stjörnuþokum meira en 13 milljarða ára gömul.

Málið er kunngjört ítarlega í tímaritinu The Astrophysical Journal. Þá hefur fulltrúi viðkomandi vísindamanna, Richard Ellis, talað fyrir uppgötvun þeirra á stjörnufræðiþingi í London. Í viðtali við BBC segir hann að vitað hafi verið af þokunum í rúmt ár. Hann segir hóp sinn hafa sannreynt niðurstöður sínar margsinnis.

„Við erum viss um að við höfum gert allt sem í mannlegu valdi stendur til sýna fólki að stjörnuþokurnar eru í þeirri fjarlægð sem við teljum" segir Richard.

Þess má geta að vegna fjarlægðar stjörnuþokanna og þess tíma sem það hefur tekið ljósið frá þeim að berast til jarðar er ómögulegt að álykta hvað sé orðið af þokunum nú. Einungis er verið að fylgjast með fortíð þeirra á árdögum alheimsins.

„Við erum raunverulega að fylgjast með uppruna okkar", segir Richard Ellis og bætir við: „Það mjög spennandi að geta notað þessa tæki til að fylgjast með alheiminum á hans yngri árum."

Sumir hafa ályktað að þessi fyrirbæri hafi verið meðal þess sem lýsti upp alheiminn og þannig bundið enda á svokallaðar Myrkraaldir við upphaf hans. Með tilurð þeirra hafi alheimurinn fyrst orðið gegnsær. „Verði ljós", eins og einhver sagði..!

Keck stjörnuathugunarstöðin á Hawaii
.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×