Erlent

Sannreynt af hverjum múmía er

Meintur Tuthmosis I
Meintur Tuthmosis I MYND/afp

Ráðist verður DNA próf til sannreyna hvort múmía sem fannst sé af egypska faraónum Tuthmosis fyrsta, eins og talið hefur verið. Efasemdaraddir segja nú að múmían sé af öðrum óþekktum manni. Erfðasýnin sem fást verða borin saman við samskonar sýni úr afkomendum Tuthmosis, svo sem drottningunni Hatshepsut, hverrar múmía fannst á dögunum.

Faraóinn Tuthmosis fyrsti tók við stjórnartaumunum í Egyptalandi árið 1506 fyrir Krist og stýrði mikilli hervæðingu og landvinningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×