Viðskipti erlent

Metsekt fyrir samkeppnisbrot

Neelie Kroes, yfirmaður samkeppniseftirlits Evrópusambandsins, þar sem hún útlistar úrskurðinn gegn Telefonica.
Neelie Kroes, yfirmaður samkeppniseftirlits Evrópusambandsins, þar sem hún útlistar úrskurðinn gegn Telefonica. Mynd/AFP

Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins (ESB) dæmdu í dag spænska símafyrirtækið Telefonica til að greiða 151,9 milljónir evra, jafnvirði 12,8 milljarða íslenskra króna, í sekt vegna brota á samkeppnislögum. Þetta er metsekt vegna brota af þessu tagi.

Telefonica, sem er eina fyrirtækið á Spáni sem hefur yfir að ráða jarðlínutengingum um landið allt, er gefið að sök að hafa krafið netþjónustur of hárra gjalda fyrir háhraðatengingu við kerfi Telefónica. Telefonica hagnaðist á athæfinu með því að bjóða sambærilega þjónustu á lægra verði og þvinga þar með önnur fyrirtæki út af markaðnum.

Í úrskurði samkeppnisyfirvalda ESB segir að hátterni Telefonica hafi komið illa niður á neytendum, einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum. Neelie Kroes, yfirmaður samkeppnismála, sagði úrskurðinn skilaboð til annarra fjarskiptafyrirtækja enda muni ESB ekki umbera viðskiptahætti sem þessa.

Talsmaður Telefonica segir á móti að fyrirtækið ætli að áfrýja úrskurðinum.

Þetta er hæsta greiðsla sem fjarskiptafyrirtæki í Evrópu hefur verið úrskurðað til að greiða og sú næst hæsta sem fyrirtæki í álfunni hefur fengið á sig. Hæstu sektargreiðsluna fékk bandaríski tölvurisinn Microsoft fyrir þremur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×