Afkoma ríkissjóðs umfram áætlanir 4. júlí 2007 10:15 Stjórnarráðið. Mynd/Pjetur
Greiðsluafkoma ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuðum ársins var hagstæðari en áætlanir gerðu ráð fyrir í fjárlögum. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 34,1 milljarð króna sem er 5,9 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. Tekjur ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuðum ársins námu 187 milljörðum króna, sem er 32 milljörðum hærri en í fyrra. Gjöld námu á sama tíma 145,2, sem er aukning upp á 18,9 milljarða. Mest munar um greiðslur almannatrygginga sem hækkuðu um 5,4 milljarða króna. Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður á tímabilinu um 40,4 milljarða króna sem er 66,2 milljörðum lakar afkoma en á sama tíma í fyrra. Viðsnúningurinn skýrist að mestu af kaupum ríkissjóðs á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun fyrir 30,3 milljarða krónur og eiginfjáraukningu Seðlabanka Íslands með 44 milljarða króna eiginfjárframlagi ríkissjóðs í byrjun maí, að sögn Fjármálaráðuneytisins. Lántökur ársins námu um 46,5 milljörðum króna og hækka um 35,4 milljarða milli ára. Munar þar mestu um 26,9 milljarða króna lántöku vegna kaupa á Landsvirkjun. Þá voru 1,7 milljarðar greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins til að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs. Staða á sjóðs- og bankareikningum versnaði um 27,7 milljarða króna á fyrstu fimm mánuðum ársins. Greiðsluafkoma ríkissjóðs
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Morgunblaðið skammað fyrir að birta óvart lítið merki Neytendur 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Stytta skammarkrókinn til muna Neytendur Gjaldþrota meðhöndlari Viðskipti innlent Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Viðskipti innlent Bobbingastaður í bobba Viðskipti erlent Semja um fjögurra milljarða króna lán Viðskipti innlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Viðskipti innlent E. coli í frönskum osti Neytendur Fleiri fréttir Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um Coda-stöð í Ölfusi Loðnuvertíð eftir allt saman Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Bein útsending: Stærðin skiptir máli Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Sjá meira