Fótbolti

Reyes áfram hjá Real Madrid?

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Reyes kemur inn á fyrir Beckham gegn Mallorca.
Reyes kemur inn á fyrir Beckham gegn Mallorca. NordicPhotos/GettyImages

Real Madrid hefur gefið það í skyn að félagið ætli sé að halda Jose Antonio Reyes hjá liðinu. Búist var við að félagið ætlaði ekki að kaupa leikmanninn þar sem að hann náði ekki að vinna sé inn sæti í byrjunarliðinu, en hann er í láni hjá Madrid frá Arsenal.

Reyes hefur gefið sterklega í skyn að hann vilji ekki fara aftur til Arsenal og að hann vilji að Real Madrid kaupi sig. Atletico Madrid er talið hafa áhuga á kappanum en yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid, Predrag Mijatovic, hefur nú sagt að liðið ætli sér kannski að halda honum eftir hetjulega frammistöðu í síðasta leik tímabilsins. Reyes kom þá af bekknum á móti Mallorca og skoraði tvívegis og tryggði þar með Real Madrid Spánartitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×