Fótbolti

Abidal fjórði Frakkinn hjá Barcelona

MYND/Reuters

Spænska liðið Barcelona, lið Eiðs Smára Guðjohnsen, gekk í dag frá kaupum á franska landsliðsmanninum Eric Abidal frá franska liðinu Lyon.

Abidal gerði fjögurra ára samning við Katalóníuliðið og greiðir félagið 15 milljónir evra fyrir hann, jafnvirði 1,3 milljarða króna. Hann er þriðji maðurinn sem gengur til liðs við Barcelona í sumar en áður höfðu landi hans Thierry Henry og Fílabeinsstrendingurinn Yaya Toure skrifað undir samning við liðið. Abidal, sem er 27 ára bakvörður, hittir auk Henry fyrir landa sína Ludovic Guily og Liliam Thuram hjá Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×