Viðskipti erlent

Tryggðu sjálfstæði Wall Street Journal

Maður blaðar í Wall Street Journal, sem bandaríska fjölmiðlasamsteypan Dow Jones & Co. gefur út.
Maður blaðar í Wall Street Journal, sem bandaríska fjölmiðlasamsteypan Dow Jones & Co. gefur út. Mynd/AFP

Stjórnir bandarísku fjölmiðlasamsteypanna Dow Jones & Co. og News Corporation, sem er í eigu ástralska auðkýfingsins Ruperts Murdoch, eru sögð hafa komist að samkomulagi sem tryggir ritstjórnarlegt sjálfstæði bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal. Með því er stærstu hindruninni fyrir yfirtökutilboði Murdochs í Dow Jones & Co. velt úr vegi.

Dow Jones & Co. er móðurfélag samnefndrar fréttaveitu og gefur meðal annars út dagblaðið Wall Street Journal. Félag Murdochs gerði fimm milljarða dala yfirtökutilboð í félagið í byrjun síðasta mánaðar en Bancroft-fjölskyldan, sem fer með ráðandi hlut í Dow Jones, var mótfallin tilboðinu.

Fréttastofan Associated Press hefur eftir heimildamanni sínum að nánari útlistanir á samkomulaginu liggi ekki fyrir. Eigi yfirtökutilboðið að ganga í gegn verður Bancroft-fjölskyldan að samþykkja það.

Stjórn Dow Jones tók af skarið um viðræður við Murdoch og fjölmiðlaveldi hans í síðustu viku en hún mun hafa verið orðin langþreytt á þrjósku Bancroft-fjölskyldunnar, sem þó hafði mýkst í afstöðu sinni gegn tilboðinu. Í stjórn Dow Jones sitja fjórir meðlimir fjölskyldunnar, en að öðru leyti er hún dreifð um Bandaríkin endilöng.

Tilboð Murdochs, sem var lagt fyrir í byrjun maí, hljóðaði upp á 60 dali á hlut en það var 65 prósentum yfir meðalgengi í félaginu áður en það var lagt fram. Gengi bréfa í Dow Jones & Co. hafa stigið hratt upp síðan og standa nú í 58,77 dölum á hlut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×