Fótbolti

Motta má fara frá Barcelona

Motta er 24 ára gamall Brasilíumaður
Motta er 24 ára gamall Brasilíumaður NordicPhotos/GettyImages
Forráðamenn Barcelona hafa verið iðnir á leikmannamarkaðnum undanfarna daga og nú er svo komið að ekki er lengur pláss fyrir miðjumanninn Thiago Motta í framtíðaráformum félagsins. Motta hefur verið settur á sölulista, en hann var aðens fimm sinnum í byrjunarliði Barca á síðustu leiktíð. Honum var gefið frí frá æfingum í vor eftir að hann viðurkenndi að hann hefði ekki nauðsynlegt sjálfstraust til að spila.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×