Fótbolti

Getafe ekki tilbúið að missa Schuster

Bernd Schuster
Bernd Schuster NordicPhotos/GettyImages

Forseti knattspyrnuliðsins Getafe á Spáni segist ekki ætla að gefast upp fyrr en í fulla hnefana þegar kemur að því að halda þjálfaranum Bernd Schuster áfram hjá félaginu. Schuster hefur verið nefndur sem eftirmaður Fabio Capello hjá Real Madrid.

"Schuster mun verða þjálfari Getafe á næsta tímabili. Ég er enn fullviss um að við getum komið öllum á óvart og haldið honum hérna og ég hef ekki heyrt í nokkrum manni frá Real Madrid," sagði forsetinn.

Forráðamenn Real Madrid ætluðu að funda um framtíðaráform sín í þjálfaramálum í dag þar sem taka átti ákvörðun um framtíð Fabio Capello, en þeim fundi var frestað eftir að körfuboltalið félagsins tryggði sér spænska meistaratitilinn í gærkvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×