Fótbolti

Henry: Barcelona er meira en knattspyrnufélag

Henry mætti til Barcelona í gærkvöld
Henry mætti til Barcelona í gærkvöld NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Thierry Henry mætti til Barcelona í gærkvöld þar sem hann mun að öllum líkindum skrifa undir fjögurra ára samning við félagið í kvöld ef hann stenst læknisskoðun. Henry sagði það ótrúlega tilfinninningu að koma á Nou Camp.

"Það er mér mikils virði að koma hingað og spila með þeim bestu. Það er ótrúleg tilfinning og ég ætla að hjálpa liðinu eins og ég mögulega get. Barcelona er meira en knattspyrnufélag og það vita allir og ég er kominn hingað vegna leikstíls Barcelona, stuðningsmannanna og andrúmsloftsins. Það er ekki hægt að vera með gott lið nema vera með frábæra stuðningsmenn og það er eitt af því sem lokkaði mig hingað," sagði Henry við komuna til Katalóníu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×