Viðskipti erlent

LSE og kauphöllin á Ítalíu sameinast

Við bresku kauphöllina í Lundúnum.
Við bresku kauphöllina í Lundúnum. Mynd/AFP

Samkomulag hefur náðst um að breska kauphöllin í Lundúnum (LSE) kaupi ítölsku kauphöllina. Kaupverð nemur 1,63 milljörðum evra, jafnvirði um 136 milljörðum íslenskra króna. Markaðsvirði beggja kauphalla nemur um 5,8 milljörðum evra, rúmlega 485,3 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar hljóðaði yfirtökutilboð bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq á norrænu kauphallarsamstæðunni OMX upp á 227,9 milljarða krónur.

Kauphallir víða um heim hafa leitast eftir samruna og samstarfi með einum eða öðrum hætti með það fyrir augum að lækka kostnað og opna fyrirtækjum og fjárfestum nýja möguleika. Horft er til þess að með samrunanum sparist allt að 29 milljónir evra, 2,4 milljarðar króna, á næstu þremur árum.

Ítalska kauphöllin, sem meðal annars rekur kauphöllina í Mílanó, var í sigti erlendra kauphalla en bæði hin nýsameinaða kauphallarsamstæða NYSE Euronext, sem samanstendur af kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum og samevrópska hlutabréfamarkaðnum Euronext, vildi kaupa kauphöllina á Ítalíu í fyrra. Sama máli gegnir um þýsku kauphöllina í Frankfurt. Öllum tilboðum var hins vegar vísað út af borðinu.

Forstjóri yfir báðum kauphöllum verður Clara Furse, forstjóri bresku kauphallarinnar, en hún barðist harkalega gegn yfirtöku bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq á LSE á síðasta ári. Nasdaq tryggði sér hins vegar 30 prósenta hlut í LSE og hefur verið haft eftir forstjóra markaðarins, að hann muni standa í vegi fyrir öllum samrunatilraunum LSE.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×