Viðskipti erlent

Hunter með fjórðung í Dobbies

Sir Tom Hunter, sem fer með fjórðung hlutabréfa í skosku garðvörukeðjunni Dobbies.
Sir Tom Hunter, sem fer með fjórðung hlutabréfa í skosku garðvörukeðjunni Dobbies.

Skoski auðjöfurinn sir Tom Hunter hefur blásið til sóknar gegn yfirtökutilboði bresku verslanakeðjunnar Tesco í skosku garðvörukeðjuna Dobbies. Hunter er mótfallinn yfirtökutilboðinu og hefur aukið hratt við hlut sinn í keðjunni. Í gær tryggði hann sér fjórðung hlutabréfa í henni.

Hunter átti um 10 prósenta hlut í Dobbies þegar Tesco lagði fram yfirtökutilboð upp á tæpa 156 milljónir punda, jafnvirði 19,7 milljarða íslenskra króna, í Dobbies um miðjan mánuðinn. Hann tók hlutinn upp í rúm 20 prósent í síðustu viku en nældi sér í 25,57 prósent hlutabréfa í henni í gær.

Kaupþing í Bretlandi er bakhjarl Hunter í fjárfestingunum í Bretlandi en fjölmilar þar í landi hafa síðustu vikuna ýjað að því að Baugur og fleiri fjárfestar sem hafi keypt með honum tvær aðrar garðvörukeðjur auk annarra viðskipta muni koma að yfirtökutilboði í Dobbies fari hann gegn Tesco. Hunter hefur hins vegar ekki lagt fram formlegt tilboði í garðvörukeðjuna enn sem komið er.

Tilboð Tesco hljóðar upp á 15 pund á hlut, sem var 23 prósentum yfir markaðsgengi bréfa í garðvörukeðjunni þegar tilboðið var lagt fram um miðjan mánuðinn. Hunter, sem höndlar í gegnum fjárfestingafélag sitt West Coast Capital, greiddi hins vegar 18,45 pund fyrir hlutinn í gær.

Breska blaðið Guardian segir í dag að þegar hluthafar sjái hvað Hunter er tilbúinn til að greiða fyrir bréf í garðvörukeðjunni sé ólíklegt að þeir taki tilboði Tesco.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×