Viðskipti erlent

Gluggað í bækur Alcan

Frá álveri Alcan í Straumsvík.
Frá álveri Alcan í Straumsvík. MYND/Haraldur

Orðrómur er uppi um að kanadíski álrisinn Alcan, móðurfélag álversins í Straumsvík, hafi opnað bókhald sitt fyrir náma- og álfélögin BHP Billiton og Rio Tinto, sem sögð eru hafa hug á að gera yfirtökutilboð í félagið. Stjórn Alcan hefur ekki viljað tjá sig um fréttirnar.

Ástralska dagblaðið Sydney Morning Herald segir í dag að viðræður séu á byrjunarstigi.

Bandaríski álrisinn Alcoa er á meðal annarra félaga sem orðað hefur verið við yfirtöku á Alcan en félagið gerði 33 milljarða bandaríkjadala, rétt tæplega 2.100 milljarða íslenskra króna, óvinveitt tilboð í álfélagið í byrjun maí.

Anik Michaud, talsmaður Alcan, sagði félagið ekki tjá sig um orðróm. Hann myndi því hvorki staðfesta né neita fréttum af málinu.

Tilboð hefur enn ekki borist frá BHP og Rio Tinto en breska blaðið Times segir það geta hljóðað upp á allt að 40 milljarða dala, tæpa 2.500 milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×