Eik banki skráður í Kauphöllina 20. júní 2007 11:27 Kauphöll Íslands.
Danski bankinn Eik Banki verður tvíhliða skráðu í Kauphöllina hér og í Kaupmannahöfn 11. júlí næstkomandi. Áður mun hlutafé bankans verða aukið. Stefnt var að skráningunni fyrr á þessu ári. Eik Bankinn komst í raðir fimmtán stærstu banka Danmerkur í lok maí með kaupum á SkandiaBanken, stærsta netbanka Danmerkur. Eignir Eik, sem áður kallaðist Föroya Sparikassi, uxu um helming við kaupin og nema um 200 milljörðum íslenskra króna. Til stóð að skrá bankann á fyrsta fjórðungi ársins en kaupin á danska netbankanum urðu til þess að forsendur breyttust og frestaðist skráningin því fram í júlí. Útboð í bréfum Eik Bank mun standa yfir dagana 21. júní - 5. júlí næstkomandi og verða nýtt til að kaupa SkandiaBanken, að sögn greiningardeildar Kaupþings í gær. Útboðsgengi bréfanna er 575 danskar krónur á hvern 100 krónu nafnverðshlut. Núverandi hluthafar Eik Bank eiga forkaupsrétt að bréfum bankans. Nýti einhverjir þeirra ekki réttinn geta núverandi og nýir hluthafar hér, í Færeyjum og í Danmörku lagt fram bindandi tilboð um að þeir óski eftir því að kaupa meira en heimildir hljóða upp á. Haft er eftir Marner Jacobsen, forstjóra Eik Bank, á vef bankans, að hann hlakki til hlutafjáraukningarinnar sem og skráningarinnar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Atvinnulíf Morgunblaðið skammað fyrir að birta óvart lítið merki Neytendur Stytta skammarkrókinn til muna Neytendur E. coli í frönskum osti Neytendur Bobbingastaður í bobba Viðskipti erlent Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Fleiri fréttir Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um Coda-stöð í Ölfusi Loðnuvertíð eftir allt saman Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Bein útsending: Stærðin skiptir máli Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Sjá meira