Innlent

Heitavatnsbruni leitt til þriggja dauðsfalla

Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist hér á landi vegna brunasára sem þeir hlutu af of heitu vatni. Byggingarreglugerð á að koma í veg fyrir að fólk geti brennt sig á þennan hátt.

 

Morgunblaðið segir í dag frá sextugum öryrkja, Ómari Önfjörð Kjartanssyni, sem skaðbrenndist fyrir um hálfum mánuði þegar hann fékk fyir sig allt að 80 gráðu heitt vatn þegar hann var í sturtu í íbúð sinni í blokk Öryrkjabandalags Íslands við Hátún. Hann berst nú fyrir lífi sínu.

Rétt röskur mánuður er síðan farið var í herferð gegn skaðlega heitu vatni undir yfirskriftinni Stillum hitann. Þá kom fram að nær 75% brunaslysa verða af heitu vatni inni á baðherbergi. Börn undir fimm ára aldri hljóta alvarlegustu áverkana samkvæmt rannsókn sem þá var kynnt. Á síðastliðnum fimm árum komu tæplega 2200 manns á Landspítalans vegna brunasára og þar af brenndu 132 sig á heitu vatni úr neysluvatnslögnum.

Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnarhúss Sjóvár, sagði í samtali við fréttastofu nú í morgun að vitað væri um að minnsta kosti þrjá sem hefðu á undanförnum árum látist af völdum brunasára sem þeir fengu vegna of heits vatns.

Til að koma í veg fyrir slík slys er best að hafa hitastilla á baðherbergisvöskum sem gerir það að verkum að vatnið fer aldrei yfir 40 gráður.

Skýrt er í byggingareglugerð að vatnshitastig í böðum skal ekki vera svo hátt að hætta sé á húðbruna við töppunarstaði í steypiböðum og baðkerum. Reglugerðin er hins vegar ekki nema 9 ára gömul og er að sjálfsögðu ekki afturvirk. Strangari kröfur eru hins vegar gerðar um ýmsar stofnanir - en þær ná ekki til blokkar Öryrkjabandalagsins, enda telst hún ekki stofnun. En mælt er með því að vatnshiti í krönum fari ekki yfir 43°C í skólum, sundlaugum, sjúkrahúsum, elliheimilum, hótelum og tilsvarandi stöðum og 38°C á barnaheimilum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×