Innlent

Prjónar og málar - einhent

Hún er í sextíu prósent vinnu við að kenna geðfötluðum - án þess að þiggja laun. Hún málar og prjónar - með einni hendi. Catherine Ness er engin venjuleg kona.

Á bakka Lækjarins í Hafnarfirði stendur sinnepsgult hús. Þar inni rekur Rauði krossinn athvarf fyrir geðfatlaða. Stað þar sem fólk getur komið saman, snætt hádegisverð, spjallað, prjónað, farið í leikfimi eða stundað listsköpun - svo það einangrist ekki heima hjá sér.

Á haustmánuðum barst hvalreki á fjörur gesta og starfsfólks Lækjar. Ung kona frá Englandi, 25 ára gömul, listaháskólagengin, mætti til landsins til að starfa í Læk. Aðdragandinn var nú ekki flóknari en svo að hún gúglaði sjálfsboðavinnu og lenti þá á evrópskum sjálfboðasamtökum sem bjóða sjálfboðavinnu um alla Evrópu.

Tíu til fjórtán gestir koma í Læk á hverjum degi og að sögn forstöðukonunnar leita býsna margir í listsköpunarherbergið þar sem Catherine kennir þeim sem vilja. Undanfarið hafa þau meðal annars verið að útbúa tröll úr fjörugrjóti og leir - að hætti Catherine sem er að undirbúa sýningu á hrauntröllunum sínum.

Fólk rekur upp stór augu þegar Catherine tekur upp prjónana - enda notum við flest tvær hendur til þeirrar iðju. Hún hefur verið einhent frá fæðingu og áður en hún kom til landsins hafði hún prjónað einn trefil í lífi sínu. Nú er hún langt komin með peysu númer tvö. Gömul kona á Grund kenndi vinkonu henni að prjóna - og sú kenndi Catherine.

Catherine er hin ánægðasta með dvölina og reynsluna enda hefur hún áhuga á að sérhæfa sig í listmeðferð í framtíðinni. En kann hún eitthvað í íslensku eftir þennan tíma?

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×