Viðskipti erlent

Orðrómur um yfirtöku á Rio Tinto

Gengi hlutabréfa í bresk-áströlsku námafélögunum Rio Tinto og BHP Biliton fór í methæðir við opnun kauphallarinnar í Sidney í Ástralíu í gær vegna orðróms um að BHP væri að búa sig undir að leggja fram risastórt yfirtökutilboð í Rio Tinto.

Bréfin ruku upp um 11 prósent og fóru í 99,69 ástralska dali á hlut sem er met. Þau lækkuðu nokkuð eftir því sem leið á daginn og nam dagshækkunin um 6,4 prósentum.

Enn sem komið er hefur ekkert yfirtökutilboð verið lagt fram í Rio Tinto en breska ríkisútvarpið hefur eftir miðlara í kauphöllinni að þótt óvíst sé hvort orðrómurinn sé byggður á traustum heimildum þá séu mikil viðskipti með bréf í félaginu.

Rio Tinto skilaði methagnaði á árinu og hefur BBC eftir greinendum að yfirtökutilboð í félagið geti hljóðað upp á rúma hundrað milljarða dala, jafnvirði 6.426 milljarða íslenskra króna.

Gengi bréfa í BHP hækkaði sömuleiðis um 4,5 prósent og fór í 32,58 dali á hlut. Gengi þeirra hefur sömuleiðis aldrei verið hærra.

Bæði Rio Tinto og BHP stunda viðamikla álframleiðslu samhliða námavinnslunni. Þau voru orðuð við yfirtöku á bandaríska álrisanum Alcoa í febrúar. Talsmenn fyrirtækjanna vildu ekki staðfesta fréttirnar og ekkert varð úr yfirtökunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×