Fótbolti

Spænskir fjölmiðlar fara hamförum

NordicPhotos/GettyImages

Spænska blaðið Sport í Barcelona sparar ekki yfirlýsingarnar í dag þar sem fullyrt er að knattspyrnufélagið Barcelona ætli sér að kaupa hvorki meira né minna en fjóra leikmenn frá Chelsea í sumar.

Sport fullyrðir að leikmenn Chelsea séu hundsvekktir með að ná ekki að vinna Meistaradeildina og því séu þeir Frank Lampard, John Terry, Arjen Robben og Michael Essien allir raunhæf markmið fyrir Barcelona. Þar þykir Frank Lampard líklegastur því unnusta hans er frá Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×