Viðskipti erlent

Uppsagnir hjá Peugeot

Peugeot 407.
Peugeot 407.

Líkur eru á að allt að 4.800 manns verði sagt upp störfum á árinu hjá franska bílaframleiðandanum Peugeot í sparnaðarskyni en sala á bílum fyrirtækisins hefur minnkað á sama tíma og efniskostnaður hefur hækkað.

Peugeot tapaði 176 milljónum evrum, 15,5 milljörðum króna, á síðasta ári. Það er engu að síður betri afkoma en árið á undan því árið 2005 nam tap fyrirtækisins 1,03 milljörðum evra, jafnvirði rúmra 90 milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×