Fótbolti

Sannfærandi sigur Sevilla á Deportivo

Sevilla fór létt með arfaslaka heimamenn í Deportivo
Sevilla fór létt með arfaslaka heimamenn í Deportivo NordicPhotos/GettyImages
Sevilla er komið með annan fótinn í úrslitaleik spænska konungsbikarsins eftir sannfærandi 3-0 útisigur á slöku liði Deportivo í fyrri undanúrslitaleik liðanna í kvöld. Freddie Kanoute, Jesús Navas og Luis Fabiano skoruðu mörk gestanna. Síðari leikur liðanna fer fram 9. maí á heimavelli Sevilla og hagstæð úrslit þar skila Andalúsíuliðinu í úrslitin þar sem það mætir Barcelona eða Getafe.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×