Viðskipti erlent

Orðrómur um yfirtöku á Barclays

Eitt útibúa ABN Amro, stærsta banka Hollands.
Eitt útibúa ABN Amro, stærsta banka Hollands. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa í breska bankanum Barclays hafa hækkað nokkuð á markaði í dag eftir að orðrómur barst þess efnis að bandaríski fjárfestingabankinn JP Morgan Chase hafi í hyggju að gera yfirtökutilboð í hann. Barclays vinnur að yfirtöku á hollenska bankanum ABN Amro. Bitinn er hins vegar sagður stór fyrir breska bankann.

Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal segir að ABN Amro hafi fengið bandaríska bankann Goldman Sachs til ráðgjafar um söluferlið. Verði af samruna við Barlays er gert ráð fyrir að til verði einn stærsti banki Evrópu með markaðsverðmæti upp á um 80 milljarða dali, jafnvirði rúmra 5.200 milljarða íslenskra króna. En margir eru um hituna því Royal Bank of Scotland er sömuleiðis sagður hafa fengið Goldman Sachs til ráðgjafar um kaup á ABN Amro eða einstökum hlutum bankans.

Fréttastofa Reuters bendir hins vegar á það í dag, að vel geti verið að Barclays hætti við yfirtöku á hollenska bankanum þar sem verðmiðinn sé of hár. Standi gengi ABN Amro í 45 dölum á hlut og megi gera ráð fyrir því að það hækki eftir því sem á líði. Hafi Barclays ekki burði til að fara öllu ofar en í núverandi gengi á hollenska bankanum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×