Viðskipti erlent

Samdráttur í bílasölu

Rick Wagoner, forstjóri General Motors.
Rick Wagoner, forstjóri General Motors. Mynd/AFP

Sala á bifreiðum dróst talsvert saman hjá risunum á bandaríska bílamarkaðnum í mars miðað við sama tíma í fyrra. Samdrátturinn var langmestur hjá Ford, eða 12,4 prósent. Á sama tíma varð aukning á sölu japanskra bíla vestanhafs. Toyota, sem stefnir á að verða umsvifamesti bílaframleiðandi í heimi á árinu, seldi 7,7 prósentum fleiri bíla í mars en á sama tíma í fyrra.

Næst mesti samdrátturinn var hjá General Motors, eða 7,7 prósent. DaimlerChrysler fylgir svo á eftir með samdrátt upp á 4,6 prósent.

Að Toyota undanskildum jókst sala á nýjum bílum undir merkjum Nissan um 3,9 prósent. Sölutölur liggja ekki fyrir frá Honda en breska ríkisútvarpið segir allt stefna í metsölu hjá fyrirtækinu í Bandaríkjunum.

Þetta þykja ekki góðar fréttir fyrir bandaríska bílaframleiðendur sem horfðu upp á mikinn samdrátt í bílasölu á síðasta ári þegar eldsneytisverð fór í sögulegt hámark. Við það leituðu bílakaupendur á önnur og ódýrari mið, þó sérstaklega til japanskra og sparneytnari bíla.

Bandarísku framleiðendurnir gripu til ýmissa ráða, meðal annars með uppsögnum á tugþúsundum starfsmanna og lokun verksmiðja í hagræðingaskyni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×