Innlent

Mikill áhugi á þátttöku í varaliðinu

Færri komust að en vildu þegar fyrstu úrtökuprófin, fyrir nýtt varalið lögreglunnar, fóru fram um helgina. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að í ljósi viðtakanna verði að hraða byggingu nýs lögregluskóla á Keflavíkurflugvelli og jafnframt kemur til álita að fjölga verulega í liðinu. Nánari upplýsingar um þátttöku í varaliðinu eru hér.

Þótt aðeins séu nokkrir dagar síðan Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti hugmyndir sínar um að stofnað yrði 240 manna varalið lögreglu er undirbúningur að stofnun þess kominn vel á veg. Fyrstu úrtökuprófin fóru fram nú um helgina og samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra komust færri að en vildu. Dómsmálaráðherra er ánægður með viðtökurnar og segir fáar hugmyndir sínar hafa vakið önnur eins viðbrögð. Fjöldi manns hafi hringt í hann eða sent tölvupóst og boðið fram krafta sína. Hugmyndir hafa verið uppi um að lögregluskólinn geti fengið aðstöðu á Keflavíkurflugvelli en Björn segir líklegt að í ljósi þessara viðtaka verði þeim áformum hrint í framkvæmd fyrr en gert hafði verið ráð fyrir. Þá útilokar dómsmálaráðherra ekki að liðið verði fjölmennara en 240 manns, áhugi fólks á að slást í hópinn sé slíkur.

Flestir varaliðsmennirnir hafa áður starfað í björgunarsveitum, öryggisvörslu, friðargæslu og öðrum slíku en áhugi þeirra á starfinu á sér þó ýmsar orsakir. Góð laun eru sögð í boði fyrir rétta fólkið enda er búist við að verkefni varaliðsins muni á stundum reynast erfið, jafnvel hættuleg.

Enn er tekið við skráningum í varaliðið. Hægt er að sækja um inngöngu í varaliðið með því að smella á þennan hlekk en einnig verður vakt í höfuðstöðvum Ríkislögreglustjóra að Skúlagötu 21 til klukkan níu í kvöld. Ekki er tekið við umsóknum í síma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×