Fótbolti

Laporta: Ronaldinho verður áfram hjá Barcelona

NordicPhotos/GettyImages

Forseti Barcelona segir að brasilíski snillingurinn Ronaldinho sé ánægður hjá félaginu og segir að honum sé frjálst að leika með liði Barcelona eins lengi og hann vill. Laporta forseti átti fund með umboðsmanni leikmannsins um helgina og fullvissar stuðningsmenn Barcelona að ekkert sé til í því að hann sé á leið til AC Milan eins og rekið hefur verið í fjölmiðlum undanfarið.

"Ronaldinho er ánægður hjá Barcelona og verður hér í mörg ár til viðbótar, því það er það sem báðir aðilar óska sér. Hann á skilið að vera hérna, hann hefur skilað félaginu miklu utan sem innan vallar og þjálfarinn er sáttur við hann. Við áttum fund með umboðsmanni hans þar sem við ræddum framtíðina og ég held að menn ættu bara að slaka á, því framtíð hans hjá Barcelona er björt," sagði Joan Laporta forseti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×