Erlent

Uppstokkun í rúmönsku ríkisstjórninni

Calin Tariceanu forsætisráðherra Rúmeníu ásamt eiginkonu sinni.
Calin Tariceanu forsætisráðherra Rúmeníu ásamt eiginkonu sinni. MYND/AFP

Calin Tariceanu forsætisráðherra Rúmeníu stokkaði upp í tveggja ára ríkisstjórn sinni í dag. Ráðherrar úr demokrataflokknum í stjórnarsamstarfi misstu ráðherrastóla sína.

Frjálslyndi flokkur Tariceanu hafði þrýst á þrjá ráðherrana að segja af sér. Stjórnmálaskýrendur töldu afsögn ráðherranna geta splundrað stjórnarsamstarfi flokkanna þriggja.

Í nýja ríkisstjórnarsamstarfinu verða að sögn forsætisráðherrans frjálslyndir og flokkur innflytjenda frá Ungverjalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×