Innlent

Áhersla frjálslyndra: Hömlur á innflytjendur

Guðjón A. Kristjánsson er formaður Frjálslynda flokksins.
Guðjón A. Kristjánsson er formaður Frjálslynda flokksins. MYND/Stefán

Frjálslyndi flokkurinn birtir heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í morgun undir yfirskriftinni: Viljum við sitja uppi með sömu vandamál og aðrar þjóðir sem hafa leyft óhindraðan innflutning erlends vinnuafls. Spurt er hver kaup og kjör íslenskra iðnaðar- og byggingaverkamanna verði þegar hægist um á vinnumarkaði. Þá er fullyrt að geta okkar til að kenna öllu því fólki íslensku sem flyst til landsins sé takmörkuð.

Frjálslyndi flokkurinn, sem lagði aðaláherslu á baráttu gegn kvótakerfinu fyrir síðustu kosningar, virðist því ætla að gera þetta að einu helsta baráttumáli sínu nú, það er að setja hömlur á innflutning erlends vinnuafls til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×