Innlent

Lögregla stöðvaði 400 bíla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók tólf ökumenn úr umferð í gærkvöldi eftir að hafa stöðvað tæplega fjögur hundruð bíla og kannað ástand ökumanna. Sex voru látnir hætta akstri þar sem ögn af vínanda mældist í þeim, fjórir voru kærðir fyrir ölvunarakstur og tveir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Um það bil helmingur hópsins var tekinn úr umferð í Þingholtunum þar sem um 50 bílar voru stöðvaðir en hinn helmingurinn við Arnarnesbrú á Hafnarfjarðarvegi þar sem um 350 bílar voru stöðvaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×