Körfubolti

Longoria stolt af rappi bónda síns (Myndband)

Tony Parker er kominn á fullt í rappinu og uppsker mikið lof frá aðþrengdri konu sinni
Tony Parker er kominn á fullt í rappinu og uppsker mikið lof frá aðþrengdri konu sinni NordicPhotos/GettyImages

Leikkonan Eva Longoria segist mjög stolt af frammistöðu bónda síns á nýútkominni rappplötu hans Balance-toi ("Hreyfðu þig"). Eiginmaður hennar er franski leikstjórnandinn Tony Parker hjá San Antonio Spurs. Aðþrengda eiginkonan leikur í myndbandi sem gefið hefur verið út við lag af plötunni. Smelltu á hlekk í fréttinni til að sjá og heyra afraksturinn.

Parker hefur verið lykilmaður í sterku liði San Antonio Spurs í nokkur ár en er engu að síður hvað þekktari fyrir að vera eiginmaður Longoriu - þó hann hafi meira að segja verið kjörinn íþróttamaður ársins í heimalandinu þar sem knattspyrnumenn eru vanalega hærra skrifaðir en aðrir íþróttamenn.

"Hann er gríðarlega hæfileikaríkur og ég er stolt af honum," sagði Longoria í samtali við People þegar hún var spurð út í rappferil bónda síns.

Fjölmargir leikmenn í NBA deildinni hafa uppfyllt drauma sína og farið út í rappið og þeirra þekktastur er líklega Shaquille O´Neal. Hann, líkt og flestir aðrir þessara íþróttamanna, hafa ekki þótt sérlega sannfærandi í rappinu og ættu ef til vill heldur að halda sig við körfuboltann. Smelltu hér til að dæma um frammistöðu Tony Parker.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×